Bréf til Láru


Wednesday, January 22, 2003
Jæja, þá er ég búin að fá leyfi fyrir því að blogga í staðin fyrir að skrifa ritgerð. Gott er nú það og blessað. Fremst í bókinni er mynd af Þórbergi og undir henni stendur: "Hér sendi ég þér mynd af mér. Lára mín. Svona leit ég út, meðan ég skrifaði kaflann um ritsnilld mína". Og hann er svona asskoti huggulegur! Ég veit ekki hvort það geri manni gott að vita hvernig aðalpersóna bókarinnar lítur út. Það er svona næstum því eins og að vera búin að sjá myndina áður en maður les bókina.. Ég sá Þórberg alltaf fyrir mér á miðjum aldri, vissulega spjátrungslegan, í kjólfötum á virkum degi með vindil og svip sem sagði hann vera yfir alla hafinn í snilli sinni, en aldrei neitt sérstaklega myndarlegan. Merkilegt. En jæja, vafalaust á hann eftir að birtast í draumum mínum á allt annan hátt en hingað til eftir lesturinn.


Tuesday, January 21, 2003
Vona bara að þetta megi, ég nenni engan veginn að skrifa ritgerð...




my archives)