Það er ekki hægt að kenna, bara læra, sagði mér vitur maður eitt sinn. Þessvegna finnst mér
leiðbeinandi miklu fínna orð en
kennari. Það er nefninlega hægt að leiðbeina fólki til að læra.
Þetta er náttúrulega bara útúrdúr.
posted by Vilborg at 2:37 PM
Þórbergur segir að á bls. 38 að menn giftist vegna þess þeir séu ekki sjálfum sér nógir. Á bls. 90 segir hann frá draumi sem hann dreymdi um ál sem beit í typpið á honum (segi seinna frá sérkennilegri álafóbíu hans) og að síðan þá hafi hann enga náttúru til kvenna. Alltaf finnst mér það plebbalegt þegar einhver lýsir því yfir að hann sé yfir kynlíf hafinn. Mér finnst svoleiðis yfirlýsingar alltaf hræsnisfullar og bera vott um öryggisleysi, jafnvel getuleysi, þess sem yfirlýsinguna á. Og nú er ég ekki að reyna að vera sniðug af því að það er svo kúl að stunda kynlíf. Allir þurfa á kynlífi að halda! Og ég er ekki að tala um e-ð pot hér!! Ég er að tala um að sýna ást og væntumþykju með snertingu og hlýju. Og að segjast vera yfir það hafinn er að þykjast vera annar en maður er, og það er hallærislegt. Þarna hrapar Þórbergur á vinsældalistanum.. Ég þoli ekki fólk sem getur ekki verið það sjálft!!!
posted by Vilborg at 2:17 PM